Peter flödeskum i köbenhavn
Litlu Frænkur
16.01.2007 14:22:16 / crazy-p

Náði þessum fjanda

jæja. loksins skelli ég einhverju djöfulsins bloggi hérna inn. orðið meira en mánuður síðan ég skrifaði eitthvað hérna. er kominn með smá leið á þessu en það er víst kominn tími til að skella inn einu.

byrja á að tala um jólafríið heima. það var helvíti gott. gaman að koma heim og hitta fjölskylduna og vini og gera ekki neitt nema éta,sofa og skemmta sér. annars hef ég nú ekkert mikið meira um það að segja, þetta jólafrí var bara helvíti nice.

svo þegar ég kom aftur út þá var bara vika í prófið. ég nennti reyndar ekki að byrja að læra alveg strax. var bara að hitta danafélagana og ræða um jólin og allt það. kíkti að sjálfsögðu í mat til hjalta,lindu og nínu. hitti odd,hödda og kristínu og hékk með pétri. það var svo ekki fyrr en ég var búinn að vera hérna í 3 daga sem ég byrjaði að læra eitthvað af viti en var reyndar helvíti duglegur fram að prófinu eftir að ég loksins byrjaði að læra. svo á fimmtudaginn var komið að prófinu. ég var ekkert stressaður fyrr en ég kom inn í skólann og sat fyrir utan stofuna og var að bíða. shit, þá varð ég bara allt í einu ógeðslega stressaður og var næstum því búinn að hlaupa út og bara fara heim, en oddur og andreas stoppuðu mig og sögðu mér að róa mig niður. andreas tók mig svo út og við reyktum svona 3 sígarettur á korteri og svo skellti ég mér inn í prófið. ég var mjög stressaður og bullaði bara fyrst en svo þegar það var aðeins farið að líða á þetta þá róaðist ég niður og byrjaði að grínast og sona og kennararnir voru að skemmta sér konunglega yfir mér. svo var ég sendur út á meðan kennararnir voru að ákveða hvort ég hafi náð og svo kallað á mig 5 mín seinna og þá sögðu þau mér að ég náði, fékk meira að segja 8. djöfull var ég sáttur, hljóp út úr stofunni og hoppaði á andreas og faðmaði hann og hljóp svo að oddi og gaf honum föstustu fimmu sem oddur hefur kynnst, hann er víst ennþá að drepast í lófanum greyið drengurinn. svo var ég bara hoppandi eins og fífl og öskrandi og eikkað. held að allur skólinn viti að ég hafi náð miðað við hvernig ég lét. ég bara bjóst ekkert við að ná þannig að ég bara missti mig þegar ég frétti að ég hafi fengið 8. skammast mín samt soldið núna fyrir hvað ég fagnaði ógeðslega mikið, en það skiptir ekki máli. er hvort eð er að hætta í þessum skóla þannig að ég hitti þetta lið ekkert aftur. en já það var mjög gaman að ná þessu prófi :lol:

svo kom raggi í helgarferð til köben þessa helgi. var hérna alla helgina og fór aftur til árósa í morgun. það var gaman hjá okkur eins og venjulega.vorum hangandi í playstation, kíktum í partí til siggu og hittum odd og hödda og já, bara skemmtum okkur mjög vel. reyndar á sunnudeginum mættust tottenham og newcastle og eins og allir vita er ég harður tottenham maður og raggi jafnharður newcastle maður þannig að það var mikil spenna í loftinu. newcastle vann svo leikinn 3-2 og ég bara brjálaðist. langt síðan ég hef orðið svona rosalega tapsár sko, verð eiginlega að biðja ragga afsökunar á því hvernig ég lét eftir leikinn. en hann hlýtur að skilja það, enda mjög tapsár sjálfur drengurinn.

en annars er ég núna bara að chilla í köben, búinn að ná prófinu og ætla bara að njóta þess að vera hérna og flyt svo heim eftir 1-2 vikur for good. hlakka til að sjá ykkur þá

pétur

p.s. ég skelli svo inn myndum frá helginni seinna í kvöld eða á morgun. checkið á því

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 23:38:16 / crazy-p

Aðventa

fannst bara rétt að láta fyrirsögnina vera eitthvað svona jóla. ekki það að ég sé neitt að fara að skrifa um aðventu hér. hef ekki tíma fyrir slíkan fjanda.

 það var mikið um fjölskyldumeðlimi sem komu hingað til köben um helgina. atli bróðir og anna konan hans komu og hitti ég þau í mat heima hjá hjalta og lindu á fimmtudagskvöldið. það var reyndar ekkert eldað en við fengum okkur besta skyndibita í heimi, amager kebab. svo sátum við bara og spjölluðum, mjög gaman að hitta þau. svo fór ég að hitta mumma bróður hennar mömmu á laugardeginum. við skelltum okkur á veitingahús á nyhavn og fengum okkur hádegismat og svo beint á pub að horfa á arsenal-tottenham. mínir menn skíttöpuðu 3-0 og það var ömurlegt en það var gaman að hitta mumma kallinn.

en núna er öllu þessu tónleikarugli lokið. fór á fimmtu og síðustu tónleikana á mánudaginn og var busta rhymes að spila. ég var löngu búinn að kaupa mér miða en svo kvöldið fyrir tónleikana fattaði ég að það var enginn af félögunum að fara. ég ákvað samt að skella mér bara einn á þetta, sem er soldið sorglegt en mér finnst það samt líka vera frekar mikil harka. kom þarna inn og byrjaði að sötra á bjór og stóð bara einn út í horni að bíða eftir að tónleikarnir byrjuðu, soldið skrítið. en svo rétt áður en að tónleikarnir byrjuðu hitti ég pétur litla bróður siggu sem er gömul bekkjastsystir mín. ég stóð með honum og einhverjum frænda hans alla tónleikana. samt fyndið hvað allir voru alltaf trylltir þegar busta rhymes tók eitthvað af þessu nýja drasli og allir sungu með en þegar hann var að taka þessi gömlu klassísku lög sem ég kom til að sjá var ég alveg trylltur en þessir hnakkar í salnum könnuðust ekki einu sinni við lögin. soldið pirrandi en samt mjög góðir tónleikar og alveg þess virði að fara þó að ég hafi lagt af stað einn og verið einn í byrjun.

á föstudagskvöldið héldum við frændakvöld. gísli og yngvi frændur mínir búa báðir hérna og við höfðum ekkert hist af viti í allab vetur þannig að við ákváðum að borða saman og hafa smá frændakvöld. það var mjög gaman og við verðum pottþétt að gera þetta aftur sem fyrst. svo fékk ég mjög skemmtilegt símtal seinna um kvöldið en þá var enn einn frændi minn. hann gummi litli, bara staddur í köben og hringdi í mig úr 10 kalla síma á strikinu. þá höfðu hann og atli vinur hans bara ákveðið að fara út á flugvöll um föstudagsmorguninn og keyptu sér far til köben til að heimsækja mig. þetta kom mér mjög á óvart en ég var samt sáttur með þá og fórum ég,gísli og yngvi niður í bæ að hitta brjálæðingana og skemmtum okkur vel það kvöld. svo gistu atli og gummi hjá mér alla helgina og flugu svo heim á sunnudagskvöldið. ekkert smá gaman að fá svona suprise heimsókn. veit reyndar að það voru ekki allir sáttir með þetta uppátæki þeirra heima á íslandi en við þá vil ég bara segja að það er í lagi að vera kannski smá reiður en samt er þetta eitthvað sem við eigum ekkert eftir að gleyma og ræða ennþá um þetta þegar við verðum gamlir kallar. shit, mér fannst þetta ekkert smá svalt hjá þeim :)

svo í gær fór ég í mat til hjalta og lindu. eftir matinn var ég eitthvað að leika við nínu litlu, en hún hefur mjög gaman að símanum mínum og er alltaf að skoða hann og ýta á einhverja takka og sona. svo ákvað ég að spila KR-lagið fyrir hana, ég er að sjálfsögðu með það inn á símanum mínum. og hún var bara að dýrka KR lagið, var dansandi og spilaði það aftur og aftur og í 2.skiptið var hún farin að syngja KR á réttum tíma í laginu. uss, ég er örugglega sá eini sem hefur náð að kenna 2ja ára barni KR lagið, er nokkuð viss um það. sá sem getur sannað að það sé rangt má endilega láta mig vita en þangað til ætla ég að vera viss um að ég er sá eini. en uss, ég var ekkert smá sáttur með nínu þarna. meira að segja þegar ég var að fara fór hún að gráta af því hún vildi hlusta meira á lagið, öskraði "KR,KR" á eftir mér grátandi. það var erfitt að fara þá, en þar sem við vorum búin að hlusta á lagið svona 6-7 sinnum og tottenham leikur að byrja eftir nokkrar mínútur varð ég að fara. en nína mín, við erum að fara að taka gott KR kvöld við tækifæri. lofa því ;)

en jæja, þetta var ágætispistill. ætla að fara að gera eitthvað af mér. heyrumst og sjáumst eftir 2 vikur :)

pétur

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 08:00:31 / crazy-p

Sulta

jæja, margt hefur nú drifið á daga vora síðan síðast. Er búinn að fara á 2 mjög góða tónleika með Pétri og höfum við skemmt okkur vel. Á laugardaginn skelltum við okkur á Cunnin Lynguists sem voru að spila í Loppen í Kristjaníu og voru það magnaðir tónleikar. Ég,Íbbi,Biggi,Örn og Jölli höfum mikið hlustað á þessa hljómsveit síðustu ár og voru það miklar gleðifréttir þegar ég las það að þeir væru að koma til Köben, en kannski ekki jafnmiklar fyrir Íbba þar sem hann vissi að hann væri fluttur heim þegar tónleikarnir voru. hefði nú verið skemmtilegra að hafa Íbba þarna líka en það breytir því ekki að e´g og Pétur skemmtum okkur konunglega og ollu Cunnin Lynguists sko alls ekki vonbrigðum. Tóku mikið af lögum af nýja disknum en tóku svo reglulega gömul klassísk lög. Við löbbuðum sáttir út, svo mikið er víst: svo í gær fórum ég og pétur á tónleika á store vega þar sem EPMD og Pharoahe Monch voru að spila. það voru líka mjög góðir tónleikar, ekki jafn trylltir og Cunnin Lynguists en samt mjög góðir engu að síður.

það er samt eitt sem ég er brjálaður yfir. eftir að ég og raggi misstum af næstum því öllum roots tónleikunum hef ég verið að mæta alltaf á slaginu á hina tónleikana en þá byrja þeir bara geðveikt seint. ég ákveð að mæta 10 á roots og þá byrja þeir hálf 9 en svo er ég búinn að mæta 8 núna á cunnin lynguists og epmd en þá byrja báðir þessir tónleikar ekki fyrr en eftir 10. hvaða djöfulsins rugl og hneysa er þetta? hvernig væri að hafa smá system á þessu þannig að maður þurfi ekki að missa af heilum tónleikum eða standa í 2 klukkutíma og bíða eftir að tónleikarnir byrji. ég er alvarlega að hugsa um að senda einhverrri tónleikahaldarnefnd kvörtunarbréf, er það er einhver slík nefnd. ekki sáttur með slíkt.

en ég klikkaði alltaf á að gefa nínu litli afmælisgjöf þar sem hún varð 2ja ára í nóvember en svo ákvað ég að þetta gengi ekki lengur og skellti mér út í amager center og fór í dótabúðina þar og keypti handa henni bangsa, meira að segja bangsímon. svo kíki ég í mat til hjalta,lindu og nínu og gef henni gjöfina og þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. það er ekkert smá gaman að gefa litlum krökkum gjöf. þegar hún opnaði gjöfina þá brosti hún alveg þvílíkt og sagði "bangsímoooon" og svo faðmaði hún mig og kyssti mig. þetta gladdi mig mikið :) pétur að gera góða hluti sem stóri frændi

ég byrjaði að lyfta á mánudaginn en hef ekki ennþá skellt mér aftur eftir það þar sem ég er bara að drepast úr harðsperrum, kannski ekki skrítið þar sem ég er að lyfta í fyrst skipti síðan ég og pabbi vorum saman í ræktinni fyrir svona 6-7 árum síðan
. verð samt að drífa mig aftur eftir skóla í dag. ég og pétur fórum og lyftum í klukkutíma í mánudaginn og var það alveg helvíti fínt. tókum bekkinn,lóðin, alls konar tæki og svo 60 magaæfingar. þetta var bara harka ;) en já núna er ég að drepast úr harðsperrum, ekki gaman að því.

en núna eru fullt af fjölskyldumeðlimum staddir í köben. atli bróðir og anna konan hans eru að koma í dag og verða hérna yfir helgina. það er víst matarboð hjá hjalta og þeim í kvöld þar sem maður hittir þau. hlakka til þess. svo er mummi bróðir hennar mömmu og þórunn konan hans hér, átti að hitta þau í hádegismat í gær en fékk ekkert símtal. mammaa og pabbi, hvað er málið með það?? ætluðu þau ekki að hringja í mig? allavega er ég ekki með símanr þeirra.

en jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í þetta skiptir. stórleikur um helgina þar sem arsenal og tottenham mætast. verður erfiður leikur en ég hef fulla trú á mínum mönnum. en annars eru bara 3 vikur í maður verði mættur heim í jólafrí á klakann. hlakka til að sjá ykkur ;)

pétur

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 18:14:39 / crazy-p

Sjaldan er ein báran stök

góðan dag

öss, langt síðan maður hefur bloggað einhvern fjanda.við vorum að klára stórt verkefni í skólanum í síðustu viku og vorum með kynningu á því á föstudaginn. við vorum með það verkefni að kynna nýjar vörur inn á danska markaðinn og valdi minn hópur 12 mismunandi adidas skó sem ekki eru ennþá komnir til danmerkur. fyrir þá sem vilja skoða þetta þá er þetta heimasíðan okkar um þetta:  www.andreasbrixen.dk/php/adidas. þetta gekk vel og fengum við hrós frá kennurunum fyrir þetta. glæsilegt :)

fyrstu tónleikarnir af mörgum þennan mánuðin voru á sunnudaginn fyrir viku og voru það dj premier og big shug sem trylltu danska líðinn. við pétrarnir skelltum okkur saman og var þetta helvíti gaman.dj premier er bara besti dj í heimi þannig að við fórum aðallega til að sjá hann en höfðum ekki heyrt mikið með big shug, en hann var samt alveg smooth gaur líka.gott kvöld þar á ferð.

kata ætlaði að koma á miðvikudaginn í síðustu viku og vera fram yfir þessa helgi en það kom soldið upp á hjá hnátunni en hún ætlar að koma í staðinn í janúar. en ég sat uppi með aukamiða á roots tónleikana fyrst að hún kom ekki en það reddaðist, hringdi í ragga gamlan góðan vin og bekkjarbróður sem býr í árósum og hann kom til köben í helgarferð og skellti sér með mér á tónleikana. við fórum samt illa að ráði okkar, það stóð nefnilega að tónleikarnir byrjuðu kl 8 þannig að við vorum ekkert að stresssa okkur, héldum að roots myndu ekki byrja fyrr en í fyrsta lagi 10 þannig að við mættum ekkert fyrr en 10. þegar við komum inn eru þeir upp á sviði og eru að segja "peace out copenhagen, the party is over" shit ég og raggi ætluðum ekki að trúa þessu, vorum næstum því farnir að grenja, en þeir voru reyndar klappaðir upp og spiluðu hálftíma í viðbót. svo eftir tónleikana hitti ég félaga minn sem sagði mér að þeir hafi byrjað í kringum hálf 9 þannig að við misstum af 1 og hálfum tíma af tónleikunum. vel gert raggi og pétur. shit, við vorum alveg brjálaðir. en ég læri af mistökunum og það eru ennþá 3 tónleikar eftir og ætla ég ekki að gera sömu mistök aftur.

en þó að við höfum klúðrað tónleikunum ætluðum við ekki að láta það skemma kvöldið og fórum við og hittum gussa og odd niðri í bæ. við sátum inn á einhverjum algjörum rónapub og sötruðum 2 en fengum svo nóg af því og ákváðum að koma okkur heim. við erum að labba á lestarstöðina þegar oddur ákveður að labba yfir götuna og fara að pissa en þá kemur dönsk kelling á hjóli sem að oddur labbar fyrir og hún reynir að öskra eitthvað "nej, nej" en það gekk ekki og labbaði oddur beint fyrir hana og hún dúndraði á hann. við hlógum að því í svona hálftíma og þegar við vorum komnir úr lestinni og komnir á amager og rétt byrjaðir að jafna okkur af hláturskastinu þá stíg ég á eitthvað sem liggur á götunni, hélt að þetta væri hundaskítur og lít við og þá er raggi rétt fyrir aftan mig og er að stíga ofan á þetta líka þegar ég sé að þetta er bara risastór rotta sem liggur dauð á götunni. strákarnir hlógu mikið að því en mér og ragga var ekki skemmt. búnir að missa af rándýrum tónleikum og stíga ofan á dauða rottu sama kvöldið, greinilega ekki okkar kvöld.

nína litla frænka átti 2ára afmæli í gær og hélt upp á það á laugardaginn. ég kíkti í það. það var fínt, hitti hjalta og lindu og vini þeirra, ruglaði svo aðeins í nínu litlu og borðaði góðar kökur. er reyndar ekki ennþá búinn að gefa henni afmælisgjöf, fer í það í vikunni. svo á linda kona brósa afmæli í dag. óska henni innilega til hamingju með daginn ;)

núna loksins loksins er ég að fara að kaupa mér mánaðarkort í ræktina hérna niðri. klára það á morgun. það er akkurat mánuður í dag þangað til ég fer heim til íslands í jólafrí þannig að ég hugsaði að ég ef ég ætla einhvern tíma að gera þetta þá verður það að vera á næstu dögum. fór niður og talaði við liðið sem vinnur þarna, þarf að koma með passamynd og eikkað rugl þannig að ég redda því á morgun og ætla svo bara að byrja að æfa. kominn tími til

en þetta er orðið fín. læt heyra í mér síðar

friður

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 22:26:19 / crazy-p

Fótbolti og læti

jæja nú jæja

það sem er að frétta af mér er að ég er búinn að vera veikur þessa vikuna. fór í skólann á mánudag en var alveg fokked þannig að ég var heima daginn eftir en dreif mig svo aftur í skólann á miðvikudag þrátt fyrir smáveikindi en er reyndar að verða alveg góður aftur. búinn að vera með kvef,hósta,hálsbólgu og bara ógeðslega slappur. ekki gaman að þeim andskota.

eins og ég sagði ykkur síðast er íbbi fluttur aftur heim til íslands þannig að maður er aftur orðinn einn hérna í íbúðinni. það er svo sem fínt að fá íbúðina út af fyrir sig aftur þar sem þetta er engan veginn 2ja manna íbúð en það var nú samt gaman að hafa íbba hérna og skemmtum við okkur vel, maður saknar hans nú smá. verð að viðurkenna það. eins gott að þú standir þig á íslandi drengur fyrst þú varst að beila á mér til að fara heim til íslands :)

orri og gussi gamlir samherjar mínir úr gróttu og skólabræður úr való og mýró eru í heimsókn hjá gussa núna. við ákváðum að fara með gestina á parken en þar voru okkar menn í fc köbenhavn að spila í dönsku bikarkeppninni á móti esbjerg. þetta var mjög gaman. leikurinn var skemmtilegur og unnu fc köbenhavn 3-1. lentu reyndar undir en voru ekki lengi að jafna og svo þegar það eru nokkrar mín í hálfleik ætla ég að vera sniðugur og fara að pissa áður en öll traffíkin á klósettið í hálfleik byrjar. gussi þurfti að pissa líka og rölti með mér niður en svo í miðju pissi heyrum við bara þvílík fagnaðarlæti og þá voru okkar menn að komast í 2-1. það voru svona 10 manns inn á klósetti og shit hvað það var fyndið þegar einhverjir 2 sköllóttir gaurar í fc köbenhavn búningnum bara trylltust yfir að hafa misst af markinu, "for helvede" og voru alveg bölvandi heillengi. gussi var frekar fúll yfir hugmyndinni minni að fara á klósett fyrir hálfleik en ég er eiginlega bara sáttur með að hafa séð þessa hooligana tryllast yfir að hafa misst af markinu í staðinn fyrir markið, þetta var hvort eð er bara mark úr víti. ekkert merkilegt við það. en já svo endaði leikurinn 3-1 og vorum við syngjandi og hoppandi allan leikinn og eftir leikinn sungum við alla leið út á lestarstöð með fc köbenhavn stuiðningsmönnum og bara mega stemning. svo í lestinni settust einhverjir fc köbenhavn hooligans við hliðina á okkur og voru að syngja diss söngva á bröndby og voru alveg trylltir, ánægður með þá. en já þetta var ekkert smá mikil stemning og er ég búinn að skella myndum inn af þessu kvöldi. checkið á því ;)

annars eftir að íbbi fór er ég búinn að vera að chilla með nafna mínum, kíkja á hjalta bróður og fjölskyldu og líka auðvitað fór á þennan leik þannig að ég er ekkert bara hangandi heima að blasta im so lonely með akon allan daginn eftir að íbbi fór, á sem betur fer fullt af öðrum góðum vinum hérna. sem er good shit.

en já held að ég nenni ekki að skrifa meira, bara aðeins að láta fólk vita að ég er ennþá á lífi. svo vil ég endilega minnast á það tottenham tók chelsea á sunnudaginn 2-1. öss það var gaman. djöfull fagnaði ég. nú mega hin liðin fara að passa sig, tottenham eru að komast í gang eftir slaka byrjun. i gave you fair warning, beware eins og félagi minn big pun sagði. en já, im out

pétur

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 18:04:48 / crazy-p

Wazzup?

jæja nú jæja

það er allt gott að frétta af mér eins og venjulega. reyndar er íbbi að fara að flytja aftur til íslands á morgun.hann var að læra hagfræði hérna á dönsku og átti í miklum erfiðleikum með að ná dönskunni þannig að hann ákvað bara að flytja heim og ætlar svo að fara í hagfræði í háskólanum heima í janúar. þannig að ég verð aftur einn í íbúðinni sem er svo sem fínt en maður á nú samt eftir að sakna pjakksins. en þetta er örugglega best fyrir hann að fara bara heim. vonum bara að honum gangi allt í haginn.

annars er það nýjasta í fréttum að ég er byrjaður að æfa körfubolta hjá íslendingaliðinu Guðrún sem spilar í dönsku utandeildinni. yngvi frændi minn hringdi í mig í gær og dró mig með sér. ég var soldið út undan þarna fyrst, var ekki alveg að ná þessum kerfum og sona en þjálfarinn spjallaði aðeins við mig og eftir það var ég orðinn bara helvíti góður, setti nokkrar góðar körfur og sona. ég verð samt að viðurkenna að formið gæti verið betra, það leið næstum því yfir mig eftir æfinguna og sat ég bara inn í klefa og svimaði ekkert smá. en ég held að þeim hafi alveg litist vel á mig og ætla ég að mæta aftur á æfingu á mánudaginn. þannig að kallinn er farinn að hreyfa sig og reyna að gera eitthvað af viti. það er ekkert nema gott um það að segja ;)

það varð allt vitlaust í köben um daginn. fc köbenhavn var að spila á móti manchester united og gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn 1-0. danirnir voru ekkert smá stoltir, sem er svo ekkert skrítið. tala um þetta sem einn stærsta sigur dansk félagsliðs í sögunni. ég fór reyndar ekki niður í bæ eftir leikinn en frétti að það hafi verið mikið um fagnaðarlæti fram eftir nóttu. til hamingju með þennan sigur kaupmannahafnarmenn.

svo er nóvember mánuðurinn loksins kominn og er það mikill tónleikamánuður. fyrstu tónleikarnir verða 12. nóv en þá eru jedi mind tricks og dj premier með tónleika í amager bio. ég og pétur ætlum að skella okkur á þá. svo fimmtudaginn 16.nóv kemur kata vinkona mín í heimsókn og förum á roots tónleika á föstudeginum og svo bara skemmta okkur. það verður gaman að fá hnátuna í heimsókn :) og svo eru cunning lynguists,epmd og pharahoe monch og busta rhymes allir með tónleika seinna í mánuðinum þannig að þetta á eftir að vera trylltur mánuður. líst vel á þetta.

en jæja, ég ætla að fara að chilla með íbba fyrst að hann er að fara á morgun.

peace

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 17:06:20 / crazy-p

Sæliir

góðan daginn

jæja þá er liðin rúmlega vika síðan ég setti inn færslu. um að gera að minna aðeins á sig. ég er búinn að vera í vetrarfríi alla þessa viku sem hefur verið mjög fínt. mæti svo ferskur í skólann næsta mánudag.

en gummi frændi kom hingað í heimsókn á fimmtudaginn og skemmtum við frændurnir okkur konunglega. við vorum soldið mikið að skemmta okkur yfir helgina. það var fullt af íslenskum stelpum í vetrarfríi og skelltu sér í helgarferð til köben og vorum við að skemmta okkur með þeim. svo hélt pétur félagi minn innflutningspartí og sona þannig að það var nóg um að vera og vorum við frændurnir mjög ánægðir með helgina. svo á mánudeginum fórum við til árósa að heimsækja krissu systur hans gumma og kára manninn henar og orra litla strákinn þeirra. svo var guðný önnur systir hans gumma þarna í heimsókn líka með patrik kærasta sínum og sigga p litla stráknum þeirra. það var mjög fínt líka í árósum og tókum við því bara rólega. spiluðum, borðuðum góðan mat og fórum í bæinn og sona. það var mjög gaman að hitta þau öll og líka fínt fyrir okkur að komast í þessi rólegheit eftir öll lætin í köben yfir helgina :) en ég vil bara þakka þeim fyrir mig og skemmtilega samveru og gumma fyrir dúndurskemmtilega helgi líka.

ég lenti í mjög skondnu atviki um daginn. ég var að reyna við stelpu um daginn á bar og allt var að ganga mjög vel og ég lét hana fá símann minn til að setja nr sitt inn en haldiði að gellan hafi ekki bara misst símann minn ofan í bjórglasið sitt og skemmt hann.ég vildi samt ekkert vera að æsa mig við hana, falleg stelpa og maður að reyna að heilla hana. en svo fer ég daginn eftir út í telia til að fá nýjan síma og þá er ég víst með samning við þá þannig að ef að síminn minn skemmist fæ ég nýjan fyrir 1 kr og fékk ég geðveikan nýjan síma með myndavél og sona þannig að í rauninni verð ég bara að þakka gellunni fyrir þetta skringilega óhapp :)

vil biðjast afsökunar á villandi heimildum í síðustu færslu minni þegar ég sagði að ég og íbbi höfum farið að reyna að redda okkur miða á jurassic 5 en það var uppselt, við vorum nefnilega báðir uppteknir þannig að hjalti fór fyrir okkur. ljótt af mér að taka heiður fyrir annara manna verk, hjalti ég vil bara biðja þig afsökunar og þakka ég þér kærlega fyrir að hafa gert okkur þennan greiða þó að það hafi verið uppselt.

en ég held að ég láti þetta gott heita í bili, hafið það bara gott heima á klakanum og við sjáumst um jólin ;)

pétur

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 14:57:50 / crazy-p

Þannig fór um sjóferð þá

jæja

hvað segja kanslarar þá? já er það ekki? glæsileiki.en nú er ég bara kominn í langt frí, ekki skóli fyrr en mánudaginn 30.okt. í dag vorum við með kynningu í skólanum og fengum mikið hrós fyrir hana. hópurinn minn alltaf að standa sig.

en ég og íbbi urðum fyrir miklu áfalli um daginn. þannig er nefnilega mál með vexti að það var bara uppselt á jurassic 5 tónleikana þegar við mættum og ætluðum að kaupa okkur miða. shit hvað við vorum fúlir maður. miðvikudagskvöldið var ekkert smá súrt, ísland byrja á að tapa fyrir svíum og svo fórum við bara heim að hanga en vissum að ef við hefðum ekki verið svona latir og drifið okkur að kaupa miða á tónleikana þá værum við á geðveikum tónleikum í staðinn fyrir að liggja heima og horfa á sjónvarpið. svo til að bæta þetta þá las ég einhverja grein um tónleikana og voru þeir víst rosalegir og fengu 5 af 6 stjörnum. tssssssss
en ég er búinn að læra af mistökunum og er búinn að kaupa mér miða á 5 tónleika sem eru í nóvember og desember en það er víst hip hop festival í gangi í köben í næsta mánuði og fullt af geðveikum tónleikum og ég er bara kominn með miða á þá alla og allt hljómsveitir sem ég hef mikið hlustað á en það eru nöfn eins og jedi mind tricks, dj premier, the roots, cunning lynguists, epmd og busta rhymes. uss góðir tímar framundan.

rétt í þessu var ég að klára að þrífa íbúðina. gummi frændi er nefnilega að koma í heimsókn á eftir og verður yfir helgina og maður vill nú hafa hreint þegar maður fær gesti. ég þreif klósettið,eldhúsið og herbergið mitt. ryksugaði og vaksaði upp og allt maður. íbúðin lítur bara helvíti vel út núna. alveg hreint magnað.

á laugardaginn héldu hjlati bróðir og linda brúðkaupspartí fyrir alla vini þeirra hérna í danmörku sem komust ekki í veisluna heima á íslandi. ég skellti inn myndum úr veislunni inn á síðuna. ætla svo að reyna að vera duglegri að skella inn myndum á ´siðuna þannig að þið fylgist með því.

en ég kalla þetta gott núna. er að fara niður til gussa sem býr í sömu blokk og ég, er að fara að hjálpa honum að setja upp sportkapalinn sem hann var að kaupa. hann er með sama pakka og ég, enski boltinn og allt þetta drasl. ekki leiðinlegt að vera með þetta. svo eftir það ætlum við að horfa á Tottenham spila við Besiktas í evrópuppninni og svo eftir það er gummi frændi að lenda og þá fer ég að taka á móti honum. busy dagur, shit. en já heyrumst

pétur

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 13:19:02 / crazy-p

Flödeboller

góðan daginn

þá er enn ein vikan vikan að hefjast. eins og venjulega á mánudögum var ég skítþreyttur en lét mig hafa það að drífa mig á fætur og mæta í skólann. verkefnið er að ganga vel og erum við að verða ready með kynninguna sem við eigum að vera með á föstudaginn.

lenti samt í vandræðalegu atviki eftir skóla í dag. ég sá að strætóinn sem ég á að taka var kominn þannig að ég tók á sprettinn til að ná honum og akkurat þegar ég hljóp að hurðinni lokaði strætóbílstjórinn á mig. ég byrjaði að banka á glerið en gaurinn opnaði ekkert þannig að ég sneri mér við sendi honum puttann í leiðinni í pirringi og er bara að labba í burtu en þá bendir einhver vingjarnlegur dani mér á að hann sé búinn að opna hurðina fyrir mér þannig að ég sný mér við og labba inn í strætó. shit sko, hann var ekki sáttur með að ég hafi sent honum puttann og horfði mjög reiður á mig og ég sagði bara mjög vandæðalega "undskyld" og reyndi að brosa. svo sé að það er troðfullur strætó og margir hlægjandi að mér. frekar vandræðalegt móment.

nú styttist í það að marri og bóbó fari aftur til íslands, þeir fara á morgun. það er búið að vera mjög gaman hjá okkur en við höfum lært tvennt í þessari ferð hjá þeim. í fyrsta lagi þá eru dönsk bakarí slök. fórum á sunnudagsmorguninn og ætluðum að fá okkur vínarbrauð en svo þegar við komum heim og erum að fara að borða það þá er bara sulta í miðjunni í staðinn fyrir þetta gula dæmi heima. ógeðslega vont. hitt sem við höfum lært er að seven eleven starfsfólk er alveg steikt. vorum um daginn þar og íbbi bað gaurinn um poka og sagði á sinni góðu dönsku "kan jeg har en pose" en þetta var greinilega ekki nógu danskur hreimur hjá íbba fyrir afgreiðslumanninn og hann þóttist ekki skilja hann og greyið íbbi þurfti að segja þetta 3 og þá rétti hann honum pokann hlægjandi. fífl. svo var annar seven eleven afgreiðslumaður sem var alveg í ruglinu. við pöntuðum okkur 3 súkkulaði donuts en svo þegar við komum heim og tökum þetta úr pokanum kemur í ljós að hann lét einhverja hommalega jarðaberja donuts í pokann, og ekki nóg með það að þeir voru hommalegir heldur líka ógeðslegir á bragðið. uss, seven eleven bara í ruglinu.

kannski muna sum ykkar eftir því á síðustu önn þegar ég skrifaði um að ég hafi séð dverg í strætó tala dönsku og fundist það skemmtilegt. það sem ég lenti í um daginn var samt bara rugl. ég fór í pizzeríuna hérna niðri á kollegíinu og pantaði mér pizzu. svo tyllti ég mér niður meðan ég var að bíða eftir pizzunni og fékk mér eina sígarettu og sá þá að við hliðina á mér eru 2 gaurar að spila pool, einn gaur og einn dvergur og dvergurinn var magnaður. hann rétt náði að koma höndunum á borðið en var samt alveg að standa sig ágætlega. svo var hann svo tapsár og var alltaf að öskra og bölva á dönsku þegar hann klúðraði og svo til að toppa allt þá var einhver svona fm chocko tónlist í gangi þarna inni og alltaf þegar hann hitti kúlu ofan í dansaði hann og var að fíflast. shit, þetta er fyndnasti og skemmtilegasti dvergur sem ég hef séð. kunni samt ekki við að vera að hlægja beint fyrir framan hann en ég var drepast út hlátri og þurfti nokkrum sinnum að líta undan og hleypa smá hlátri út. eins gott að ég var einn þarna, ef að íbbi,oddur eða hjalti bróðir hefðu verið með hefði ekki verið séns að halda niðri í sér hlátrinum. en þetta var ekkert smá skemmtilegt og kryddaði tilveruna hérna í danaveldi. get ekki sagt annað.

en jæja ég þarf að koma mér út í pósthús áður en lokar. ég og íbbi erum að fara að kaupa miða á jurassic 5 tónleikana sem eru á miðvikudaginn. uss, það á eftir að vera rosalegt. lög eins og concrete schoolyard,whats golden og jayou. getur bara ekki klikkað. byrjum kvöldið á að horfa á ísland-svíþjóð og svo bara beint á tónleikana. uppskrift að góðu kvöldi.

heyrumst

pétur


lets take you back to the concrete streets
original beats with real live mc´s
playground tactics
no rabbits in a hat tricks
just that classic
rap shit from jurassic

we´re not balling, or shot calling
we take it back to the days of yes y´all-in´
we holdin on to whats golden
on a stage i rage and im rollin

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 21:11:46 / crazy-p

Whats up?

góðan daginn félagar og fólk nær og fjær

shit, langt síðan ég hef skrifað einhvern skít hérna. en málið er nú bara það að ég er búinn að vera á íslandi í næstum 2 vikur og ég nenni ekki að vera einhver bloggsteik og skrifa þegar ég er á íslandi. þetta er nú bara gert svo fólkið á klakanum geti fylgst með mér í baunaveldinu. en ég fór til íslands fimmtudaginn 21.sept og átti bara að vera fram á mánudagsmorguninn 24. mamma var nefnilega að halda upp á hvað henni hefur batnað vel og var mega hátíð í gangi og hún gat ekki haldið þetta án þess að bjóða pésa litla til landsins og í partíið. það var mjög vel heppnað, fullt af fólki mætti og mjög gaman.vil óska mömmu til hamingju með batann og vel heppnað partí.

en svo vaknar maður daginn eftir og er þunnur en samt glaður með vel heppnað kvöld daginn áður. en þá fær maður þær fréttir að amma hafi dáið um laugardagsmorguninn. það voru að sjálfsögðu sorgarfréttir og var maður bara miður sín þann daginn. en ég ákvað að fresta för minni til baka um viku svo ég gæti farið í jarðaförina. hún var orðin mjög veik og örugglega þetta sem hún hefði viljað, en samt alltaf sorglegt að missa einhvern sem manni þykir vænt um. hvíldu í friði amma mín.

en fyrst ég var viku lengur þá náði maður nú að hitta fleiri og gera meira með fjölskyldunni. hékk mikið með erni,bigga,bogga og örnu og áttum við skemmtilegar kvöldstundir saman. gummi frændi var líka góður á því og tókum við nokkur góð chill og bæjarferðir. kata,snædís og rannveig líka alltaf góðar á því. og svo bara hanga með familíunni í góðu chilli. þakka ykkur öllum fyrir góðar stundir og maður er strax farinn að sakna ykkar aftur ;)

má heldur ekki gleyma KR leikjunum 2 sem ég fór á. fór á valur-KR og jafnaði KR leikinn á síðustu mín og tryggðu sér sæti í evrópukeppninni og guð minn góður hvað allt trylltist úr fögnuði. ég var með árna frænda og himma snilld á leiknum og við bara misstum okkur, hoppuðum á stúkusætunum föðmuðum hvorn annan og stóðum í stúkunni í allavega korter eftir að leikurinn var búinn og sungum KR söngva, ekkert smá gaman. en svo ákváðu KR að skíta á sig helgina eftir og töpuðu fyrir keflavík í bikarúrslitum, tölum ekkert meira um það hér.

en nú er maður kominn aftur í ghettóið á amager. það er alltaf gaman að vera hérna á öresundskollegiet. fyrsta kvöldið var farið á kollegíbarinn og vorum við stór hópur þar að ræða það sem hafði gerst meðan ég var á klakanum. ég, íbbi, gussi, oddur,  hjalti bróðir, höddi, kristín og einhver dönsk pjása sem er vinkona kristínar. hörkustemning. svo erum ég og íbbi ennþá í íbúðinni minni, veit ekki hvenær drengurinn ætlar að prumpast til að finna sér íbúð. samt allt í góðu, íbbi er alltaf jafngóður á því þó að ég sé nú kominn með nóg af þessum world of warcraft leik sem hann hatar ekki að spila :) svo eru bóbó og marri félagar okkar af nesinu í heimsókn. við erum aðeins búnir að vera að túristast með þeim og sona. þeir eru hressir.

svo er ég búin að kíkja í heimsókn á hjónin lindu og hjalta bróður og nínu litlu stelpuna þeirra. nína var nú greinilega búin að sakna mín, var leikandi við hana langt fram yfir hennar svefntíma og hún var orðin svo spennt að hjalti og linda voru ekki sátt hvað ég var búinn að gera hana spennta, hún vildi bara alls ekki fara að sofa. en ég ræð ekki við hvað ég er góður stóri frændi, sumir eru bara vinsælir. ekkert við því að gera. var líka boðinn í mat til þeirra áðan. fékk góðan kjúklingarétt, good shit. takk fyrir mig

fyrsti skóladagurinn var svo í dag eftir að hafa misst mikið úr meðan ég var á íslandi. shitturinn titturinn hvað það var erfitt að vakna. hitti odd fyrir utan blokkina og fórum við í metroið samferða í skólann og það lá við að ég væri grátandi úr þreytu, var næstum því sofnaður svona 17 sinnum á leiðinni í skólann. er ennþá inn á íslenska tímanum og samkvæmt íslenskum tíma var kl 6 um morgun þegar ég vaknaði. fuck sko, þetta var ekkert grín. en ég komst á lífi í skólann og er kominn inn í verkefnið sem við erum að gera núna og það gengur ekkert annað en að standa sig eftir þetta langa frí.

svo eru góðir tímar framundan. hjalti bróðir og linda ætla að halda upp á brúðkaupið sitt fyrir okkur íslensku baunana og það á að vera tryllt partí. það á eftir að vera gaman. svo eru jurrasic 5 tónleikar í næstu viku, gummi frændi að koma eftir 2 vikur í heimsókn og kata kannski líka. svo er biggi að stefna að því að koma líka í næsta mánuði. þannig að þó að maður sé farinn þá er maður að hitta mikið af ykkur strax aftur. sem er auðvitað bara mjög gott mál.

en ég er búinn að skrifa nógu mikið núna. vildi bara skrifa góðan pistil fyrst að ég hef ekkert skrifað í næstum því 3 vikur. en öllu má nú ofgera góðir hálsar og ég er farinn. peace out

crazy-p aka lazy-p

p.s. amager kebab er besti skyndibiti í heimi. ég borða þetta grimmt hérna og ég var ekki búinn að fá þetta í 2 vikur en ég og oddur skelltum okkur eftir skóla og fengum okkur einn kylling kebab med hvidlög,salat og lidt chilli og það var bara eins og það væri kynsvall í munninum á mér. mæli með þessu við alla sem koma til köben.

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 15:41:44 / crazy-p

Hvað segja bændur?

Jæja, þá er kominn tími til að skrifa einn pistil hér á bæ. Ég og íbbi erum ennþá 2 í íbúðinni. Hann er samt að fara að skrá sig á leigulista í dag þannig að aldrei að vita hvað gerist. Þetta hefur samt alveg gengið áfallalaust fyrir sig, engin rifrildi eða neitt svoleiðis. En samt værum við báðir alveg til í að fara að fá að vera með eigin íbúð. Þetta kemur allt á endanum.

Annars er skólinn bara kominn á fullt og er ég í góðum hópi eins og venjulega. En hópurinn er nánast sá sami og í fyrra, við erum 4. Ég,andreas,maria og shi si. Við vorum að klára hópverkefni þar sem við vorum að gera buiseness card í flash forriti. Fyrir þá sem eru áhugasamir um að skoða slíkt þá er slóðin hér www.andreasbrixen.dk/gxa. Annars verð ég að viðurkenna að ég var ekki alveg með á nótunum í þessu buiseness card dæmi, en flestir í bekknum áttu í erfiðleikum með þetta þannig að ég þarf ekkert að panica. Andreas sá aðallega um þetta og gerði vel, en við hin lögðum það sem við gátum að mörkum. Svo vorum við að byrja að læra nýtt í dag og ég er ennþá alveg með og er að ná þessu, um að gera að halda því áfram.

Fyrsti leikurinn hjá FC Köbenhavn í meistaradeildinni var í gærkvöldi. Því miður náðum við ekki að redda okkur miðum á leikinn en ég,skari og íbbi fórum á pub niður í bæ og horfðum á þetta. Allir pöbbar voru fullir og allir að syngja danska fótboltasöngva og þvílík stemning. En leikurinn endaði 0-0 sem eru svo sem allt í lagi úrslit fyrir danina þar sem þeir voru að spila við benfica sem er hörkulið.

Veðrið er líka búið að vera magnað hérna, sérstaklega þessa viku. Bara þvílíkur hiti, sól og alveg logn. Ég,íbbi,matti,gussi og oddur erum búnir að vera öflugir í sólbaðinu og chilla einhvers staðar úti. Ekki slæmt að koma heim úr skólanum og leggjast út í sólina með einn kaldan, sérstaklega þar sem það er 14.september. Maður er ekki alveg vanur þessu. En já, þetta er alveg spikfeitt :)

En ég hef þetta ekki lengra, eftir 1 og hálfan tíma byrjar slavia prague-tottenham og er þetta fyrsti evrópuleikur sem ég horfi á með mínum mönnum í tottenham. Þannig að þetta er stórstund í lífi mínu og um að gera að taka sturtu,raka sig og klæða sig í nýja tottenham búninginn og skella sér niðri í bæ og horfa á mína menn. Ég er nefnilega ennþá í einhverju helvítis veseni út af cabel TV. Ég nefnilega borgaði ekki einhvern reikning og það er  ennþá allt í fokki út af þessu en ég er að reyna að redda þessu, en þangað til þarf ég alltaf að fara á pub til að horfa á þessa leiki. En ég læt mig hafa það í dag þar sem þetta er fyrsti evrópuleikur tottenham í 7 ár og sá fyrsti sem ég sé. COME ON YOU SPURS !!!!!!!!

Kveðja
Pétur

» 8 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 11:37:10 / crazy-p

Fyrsta vikan

Þá er maður búinn að vera í viku og bara búið að vera fínt. Af þessum 7 nóttum sem ég og íbbi erum búnir að vera hérna höfum við bara verið 2 hérna 3 nætur. Á miðvikudagsnóttina fékk gussi að gista hérna en hann var að flytja hingað út og er að bíða eftir íbúðinni sinni. á föstudagsnóttina fékk svo hjalti, félagi minn og íbba úr vesturbænum, að gista eina nótt en hann flaug svo til íslands daginn eftir. Svo á laugardagskvöldið kom raggi clausen og gisti hann 2 nætur en fór svo í morgun til árósa þar sem hann er að fara að byrja í skóla. Þannig að það er búinn að vera mikill troðningur inn í litlu íbúðinni minni þessa viku. En bara gaman að því. Við vorum svo að tala um að við þurfum að fara að redda einhverjum stelpum hérna í gistingu, gengur ekkert að hafa endalaust pulsupartí hérna :haha:

Ég er meiddur á löppinni þessa dagana, mjög haltur. Labba eins og einhver steik og eru þetta fáránlegustu meiðsli sem ég hef lent í. Það var partí hérna á kollegíinu á laugardagskvöldið, fullt af fólki og mikil stemning. Svo þegar þetta er að klárast sjáum við að það er hópur af innflytjendum og hópur af dönum eitthvað að rífast og allt útlit fyrir hópslagsmál þannig að ég og íbbi tylltum okkur á bekk þarna rétt hjá til að fylgjast með þessu. Svo brjótast út slagsmál og hóparnir láta höggin dynja á andlitunum á hvor öðrum en svo allt í einu kemur einhver spikfeit dönsk stelpa hlaupandi inn í þetta og kýlir einn af innflytjendunum og gaurinn er ekkert að spara höggin þó að þetta sé stelpa og bara kýlir hana í jörðina og hún hrynur með miklum látum og lendir beint á löppinni á mér þar sem ég sat í sakleysi mínu að fylgjast með. Þetta var ógeðslega vont, ekkert grín að fá svona 100 kílóa stykki á löppina á sér. Ég öskraði, af því þetta var ógeðslega vont, og þá stoppuðu hóparnir að slást í smástund og löbbuðu upp að mér og báðust afsökunar og svo nokkrum sekúndum seinna byrjuðu allir að slást aftur. Ég og íbbi ákváðum að forða okkur upp svo að stykkið myndi ekki lenda aftur á okkur. Þetta var smásársauki fyrst en ég gat alveg labbað eðlilega en svo daginn eftir var ég kominn með risamarblett og er þvílíkt haltur. Frekar vandræðalegt í skólanum í dag að þurfa að útskýra af hverju ég er svona haltur. En það verður bara að hafa það.

Á miðvikudagskvöldið er svo Ísland-Danmörk í undankeppninni fyrir EM í fótbolta. Það er kominn mikill spenningur í fólk hérna. Ég er búinn að vera með þvílíkar yfirlýsingar við Andreas, danskur gaur í bekknum mínum, og erum við búnir að plana að fara á einhvern pub að horfa á þetta. Ég tek íslenska vini mína með og hann kemur með nokkra dani með sér. Það á eftir að vera mikill hiti og rígur milli okkar þessa viku. Bara eins gott að við vinnum eftir allt sem ég er búinn vera að segja. En við tókum N-Íra um daginn 3-0 þannig að við erum á fínu skriði. Svo skoraði Defoe 2 fyrir England á laugardaginn. Það gladdi mig mikið, vildi bara koma því að líka :)

En já, ég læt þetta duga að sinni. Hafið það gott á Íslandi og ÁFRAM ÍSLAND.

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 13:43:29 / crazy-p

Mættur aftur út

Jæja þá er maður kominn aftur til Kaupmannahafnar eftir gott sumar á Íslandi. Sumarið var helvíti gott. Vann í bæjarvinnunni með himma,þolla,atla krusty og fleiri góðum drengjum og stúlkum. Svo var partíað og chillað mikið með erni,bigga,örnu og félögum. Svo kom Larry Love félagi okkar frá Bandaríkjunum í heimsókn, gaman að hitta hann eftir langan tíma. Svo fór ég í tvö brúðkaup hjá bræðrum mínum, gaman að fara í veislur með mömmu,pabba,gunna og sirmu og allri fjölskyldunni. Þannig að ég vil bara þakka ykkur öllum fyrir gott sumar :)

Gamla heimasíðan mín er í einhverju fokki, gat ekkert skráð mig aftur inn á hana. Þannig að ég bara er hættur með hana og þetta er nýja dæmið. Vona að þetta valdi ekki neinum óþægindum.

Ég mætti aftur hérna út á mánudagskvöldið. Íbbi gistir í íbúðinni hjá mér núna þar sem hann er nýfluttur út og ekki ennþá kominn með íbúð. Vitum ekki ennþá hvað það verður langur tími. Íbúðin mín er ekki stór en við tókum hana gjörsamlega í gegn í gær þannig að við gætum náð að búa hérna báðir án þess að það yrði of mikill troðningur. Við erum vissir um að mæður okkar hefðu orðið mjög stoltar hefðu þær séð til okkar í gær. Vorum með þvottahanska,tuskur og sprey og þrifum allt og sópuðum. Þetta tók okkur 2 klukkutíma og vorum við báðir orðnir sveittir og ógeðslega þreyttir eftir öll þessi þrif. En þegar þetta var búið vorum við mjög ánægðir og stoltir, eins og mæður okkar hefðu verið. Svo buðu Linda og Hjalti okkur í mat á þriðjudagskvöldið og svo eftir það mættu fullt af KR-ingum og einn þróttari yfir til mín og við horfðum á KR-Þróttur í undanúrslitum í bikarnum sem var sýndur í beinni á netinu. KR unnu 1-0 eftir framlengingu og þetta var skítleiðinlegur leikur. En KR vann og eru komnir í úrslitaleikinn á móti drulluvík (Keflavík) sem er good shit :)

Ég gat bara ekki sofnað á mánudagskvöldið fyrr en 6 um morguninn þannig að það ættu allir að vita það sem þekkja mig eitthvað að það var ekki séns að ég myndi ná að vakna í skólann 2 tímum síðar. Ég talaði samt við fólkið í hópnum mínum og það skildi mig alveg, nýkominn til landsins og það tekur smátíma að aðlagast aftur. En ég ætlaði mér alveg að mæta, var kominn upp í rúm á miðnætti en bara sofnaði ekkert fyrr en 6. Svo er alltaf frí á miðvikudögum í skólanum en ég mæti ferskur á fimmtudeginum. Gengur ekkert annað.

 Svo er FC Köbenhavn- Man Utd 1.nóv hérna í Kaupmannahöfn. Það verður byrjað selja miða á leikinn á föstudagsmorguninn þannig að allir sem vilja að ég reddi þeim miða verða að hringja í mig (0045 28568490) í kvöld eða á morgun.

En nú þurfum ég og íbbi að fara að versla okkur eitthvað í matinn og kaupa okkur kort í ræktina. Ætlum að massa okkur aðeins upp áður en við mætum á körfuboltaæfingu hjá íslenska körfuboltaliðinu Guðrún sem spilar í dönsku utandeildinni. Sjáumst síðar

Pétur

» 11 hafa sagt sína skoðun